Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Mikael
Mikael

Jólagjafir 2011

Mikael: Mamma, afhverju er jólagjöfum alltaf pakkað inn?
Mamma: Góð spurning, tja...
Mikael: Leyfðu mér að geta... Það er vegna þess að Jesú var innpakkaður...!

0 | 28.12.2011 21:28:43 #

Mikael: Mamma, afhverju er jólagjöfum alltaf pakkað inn? Mamma: Góð spurning, tja... Mikael: Leyfðu mér að geta... Það er vegna þess að Jesú var innpakkaður...!
Innpakkaður=vafinn reifum og lagður ...
0 | 28.12.2011 21:25:47 #

Fegurð friðarsúlunnar

13 Nóvember 2011

Vá hvað friðarsúlan er falleg mamma.  Hún er meira að segja fallegri en Gunnar!?!"

0 | 5.12.2011 17:58:01 #

Það er gott að búa á Íslandi

Mikael: Mamma, við erum svo heppin að búa á Íslandi!
Mamma: Já, hvað finnst þér best við það?
Mikael: Ja, hér eru svo góðir söngvarar, eins og Páll Óskar og svona.
Mamma: Já, einmitt, sammála því, en hvað annað er gott við að búa á Íslandi.
Mikael: Nú, ströndin maður!

0 | 5.12.2011 17:48:58 #

"Salaskóli er bara æðislegur út af því hann býr til góðan mat, nema lasagna. Þar er líka flottur salur."
Ritgerð Mikaels v/10 ára afmælis Salaskóla:
0 | 9.5.2011 22:59:55 #

prufa

prufa
0 | 5.4.2011 21:53:31 #

Kvöldsamskipti Mikaels og mömmu hans þann 5.apríl 2011
- Mamma hjálpar Mikael úr peysunni og hendir henni á gólfið, ætlar að fara með fatahrúgu dagsins í óhreina tauið.
- Mikael hneykslaður: "Hva, hendirðu bara fötunum á gólfið? Er mamma þín ekkert að ala þig upp eða hvað?"
0 | 5.4.2011 21:52:06 #
Mikael og "Ástin"
M: "Mamma, á ég ekki bara að giftast þér?"
Á: hlær góðlátlega. "Nee... það gengur ekki, þú þarft að finna þér einhverja konu/stelpu á þínum aldri til að giftast"
M: "Ha? og taka hana frá manninum sínum?"
Á: "Nee.., kannski einhverja stelpu sem á ekki mann og þú verður ástfanginn af?"
M: "Já, eins og til dæmis Ástu Maríu?"
Á: "Já, til dæmis."
M: "Auðvitað já, hún þarf náttúrulega eiganda!"

skýring: Kannski í þessu samhengi eigandi hafi átt að vera eiginmaður, en skemmtilegt engu að síður
0 | 17.3.2011 12:57:05 #
Ganga í skóla(nn)
Í aðdraganda skólagöngu, haustið 2010, kom í ljós að Mikael var mun spenntari fyrir því að ganga í skólann heldur en að ganga í skóla.
0 | 3.9.2010 09:26:41 #

2010

0 | 0 | 1.8.2010 23:13:34 #
Klemmuborgari
Nú hefur handborgari, sem er uppáhaldsmaturinn, breyst í klemmuborgara. Eftir nokkra yfirlegu komst mamma að því að þetta er upprunnið úr Svampi Sveinssyni (sem Mikael kallar Svampur Simpson). Það er sem sagt karakterinn KLEMMI sem býr til Klemma-borgara, sem hefur breyst í meðförum Mikaels í KLEMMUBORGARA.
0 | 1.8.2010 22:11:19 #

Barnavarningur

0 | 0 | 1.8.2010 09:46:11 #
´Halló Mikael og mikið ertu duglegur að baka ,settir kökuna inn í ofnin líka og tókst hana varlega úr ofninum þegar hún var bökuð og settir á kremið , mjög duglegur og góður.
Harpa frænka | 0 | 13.1.2010 15:11:25 #
Vildum óska fjölskyldunni gleðilegra jóla. Vonum að þið hafið það voða kósý um hátíðirnar. Knús, Barbara og Kristón vinur.
Barbara Ösp Ómarsdóttir | 0 | 22.12.2009 23:25:11 #
Vorum bara adeins ad kikja i heimsókn...rosa skemmtilegar myndirnar þínar. kv erlendsina örvar atli og bumbukrílið
Erlendsina | 0 | 23.9.2009 08:59:06 #
Ég fór til tannlæknis í fyrsta skiptið. Tannlæknirinn heitir Björn Þorvaldsson
Mikael - 5 ára
Gleðilegt ár kæri vinur og takk fyrir það gamla. Bestu kveðjur Kristjón Forni og mamman.
Barbara Ösp Ómarsdóttir | 0 | 2.1.2009 14:46:24 #
Handborgari
Uppáhaldsamaturinn núna er handborgari, sem er auðvitað hamborgari. Þetta minnir á handsprengju eða eitthvað því um líkt.
0 | 11.12.2008 22:33:40 #

2008 haust og jól

0 | 0 | 11.12.2008 22:14:50 #

SUMAR 2008

0 | 0 | 17.8.2008 09:26:21 #